Örfréttir

Skráðu þig á póstlistann.

Hvað hefur venjuleg manneskja mörg augu?
Nafn:
Email:

Gunnar Bíldal kaupmaður

Saga húsanna við Vetrarbraut 17A og 17B

Í upphafi var lóðin nefnd Vetrarbraut 21, en var síðar breytt 

<<<<< Gunnar Bíldal kaupmaður

Syðri hluta hússins við Vetrarbraut 17 (A) lét Gunnar Bíldal kaupmaður með fleiru,reisa árið 1920 og þar bjó hann í mörg ár. 

 

Í nóvember 1941 seldi  Gunnar húsið, athafnamanninum Jóni L Þórðarsyni.  Gunnar fékk að búa þar áfram samkvæmt samkomulagi, leigulaust til 10 maí 1942

Lóðin Vetrarbraut 17B  er lóðarblettur, "rétthyrndur ferhyrningur 33 álnir frá norðri til suðurs og 27 álnir frá austri til vesturs, eða alls 891 fer-alin" eins og segir í upphaflegum leigusamningi gefnum út af séra Bjarna Þorsteinssyni, til handa Jóhanni Sigurgeirssyni. 

<<< Jón L Þórðarson athafnamaður

 

 


 Ofanritað votorð var gefið út í tengslum við veðsetningu fyrir bankláni.

19. apríl 1940 skrifaði Kristján Sigtryggsson trésmíðameistari undir lóðaleigusamning vegna fyrirhugaðrar byggingar á lóðinni Vetrarbraut 17B á Siglufirði.  Kristján tók þar með að sér að greiða vangoldin leigugjöld af lóðinni allt frá árinu 1935, vegna fyrri eiganda (Gunnars Bíldal)

<<<< Kristján Sigtryggsson, byggingameistari

 

 

 

 

Mikið af opinberum skilmálum kom svo neðar í skjalinu, alls 17 liðum, en niðurlag  skjalsins má sjá hér fyrir neðan Og svo hér neðar Byggingavottorð.

 

Svona var upprunaleg teikning af B hluta hússins, teiknað af Kristjáni, en hluti hússins, "vélasalurinn" var aldrei byggður.

 

Það var svo 22. júní 1945 sem Síldarverksmiðjur ríkisins keyptu neðri hæð hússins, norðurhlutann þá aðeins "fokheldan" Kristján sem hafði útbúið sér og fjölskyldu heimili á efri hæðinni hélt þar áfram búsetu um skeið.  

 



15. nóvember 1946
kaupa Síldarverksmiðjurnar syðra húsið  (A hlutann) af Jóni Þórðarsyni og þangað inn flutti síðar Georg Andersen rennismiður hjá SR. og bjó hann þar til æviloka.

 

<<<<<< Georg Andersen, rennismiður

 

29.apríl 1947 kaupa svo Síldarverksmiðjurnar einnig efri hæð B hlutans ásamt tilheyrandi.


Í norðurhluta hússins, þeim sem safnið Saga Fotografica er nú til húsa, (B hlutinn) var í langan tíma Efnarannsóknarstofa SR bæði uppi og niðri, og þar réði ríkjum lengst af Ragnheiður Bachmann, kvenskörungur mikill og vinsæl kona, en Páll Ólafsson efnafræðingur mun áður hafa verið yfirmaður hennar á Efnarannsókn SR, sem þar áður var til húsa í minna húsi aðeins sunnar við götuna, það hús er löngu horfið.
Eftir að Efnarannsókn SR flutti um set og Ragna löngu hætt, þar sem að mjöl- og lýsissýni voru að mestu flutt suður til Reykjavíkur til greiningar (vegna reglugerða tilskipana EBS) , aðeins grunn rannsóknir sýna fóru fram á Siglufirði, og síðar  í þróarhúsi SR46.

 <<<< Ragna Bachmann



Húsið var lengi vel eftir það, ekki notað til annars en til sem geymsla. En um og eftir árið 1970 var farið að nota neðri hæð hússins (norðurhlutann) til sýrublöndunar og klórframleiðslu, undir stjórn Jóhanns G Möller. Klórblöndur og ýmsar sýrutegundir voru mikið notaðar vegna loðnuvinnslunnar, þrifa ofl. Síðar var komið upp á neðri hæðinni trésmíðaverkstæði, til nota vegna starfsemi verksmiðjunnar, og síðar á vegum Gylfa Pálssonar og fleirum. 

 <<< Jóhann G Möller



 

 

 

Hér til hliðar má sjá húsið eins og það leit út árið 1959

(nýbygging norðurhluta SR-Vélaverkstæðis í forgrunni)

 

 

 

 


Árið 1996, 10. júlí
kaupir svo Gylfi Pálsson trésmíðameistari alla eignina A&B ásamt vélum og búnaði, af SR-MJÖL HF sem hafði nokkru áður yfirtekið allar eignir Síldarverksmiðjanna.

Gylfi hafði hugsað sér að reka í norðurendanum tréverkstæði sem hann gerði um tíma. 

Einnig ætlaði hann að koma fyrir og reka í suðurðurhlutanum sólbaðstofu og annan skyldan rekstur, en féll frá því.
Hann breytti svo plássinu talsvert og gerði  miklar lagfæringar, meðal annars lyfti hann upp þakinu sem varð háreystara. 

Þar var svo í nokkur ár rekið áhugabílaverkstæði, sem Gylfi leigði nokkrum bíleigendum vegna tómstundavinnu.



Þann 18. október 2002
selur svo Gylfi syðri hlutann. 
Kaupandinn var Guðni Þór Sveinsson, sem var einn þeirra sem áhuga hafði á bílasporti, og einn af þeim sem höfðu notað húsnæðið þar áður.  Aðeins þrem dögum síðar er eignin seld fyrirtækinu Siglókjör ehf. Húsið er áfam notað til tómstunda vegna bíla og mótorhjóla áhuga, og komu þar margir við sögu.

<<<<< Guðni Þór Sveinsson




24. október 2004 fer norðurhluti hússins (B) til nauðungarsölu og lendir hjá Byggðastofnun.  

28. desember 2005 fer suðurendinn einnig til nauðungarsölu og lendir hjá Sparisjóði Siglufjarðar.

20. janúar 2006 kaupir Hinrik Aðalsteinsson syðri hlutann af Sparisjóði Siglufjarðar 

29. mars 2007 kaupir svo Hinrik Aðalsteinsson einnig norðurhlutann af Byggðastofnun og á hann þar með allt húsið Vetrarbraut 17 A&B.

<<<< Hinrik Aðalsteinsson

 

 

 

Svo að lokum, þann 15. júní 2009 kaupa núverandi eigendur húsið, það eru hjónin Baldvin Einarsson og Ingibjörg Sigurjónsdóttir.

Saga Fotografica er til húsa  við Vetrarbaut 17 á Siglufirði.

Myndavélasögusafnið

 Saga Fotografica.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 Vetrarbraut 17 A&B áður en Gylfi Pálsson endurbyggði þakið á suðurhlutanum. (til vinstri á myndinni)


Heimildir: Sýsluskrifstofan á Siglufirði, Bæjarskrifstofan á Siglufirði, Steingrímur Kristinsson.
Allar ljósmyndirnar + skönnun skjala: Steingrímur, nema andlit Rögnu, Guðna og neðsta myndin, sem fengnar voru frá netinu, ljósmyndarar ókunnir. Texti: Steingrímur.

 

Saga-Fotografica
Saga ljósmyndunar á Íslandi,
Sýningar á hinum ýmsu tækjum og 
ljósmyndum ljósmyndasögunnar.
 
Reglulegar ljósmyndasýningar.
Saga-Fotografica
Vetrarbraut 17
580 Siglufirði
Sími 555-1833
Opnunartími:
Vinsamlega hafið samband við:
Svein Þorsteinsson 848-4143 eða
Steingrím Kristinsson 892-1569
Þeir eru snöggir á staðinn.
Almenn opnun auglýst á fésbók.